Við elskum að taka á móti hópum! Ef ekkert að neðangreindu höfðar til þín geturðu alltaf
prófað að senda okkur línu á booking@oldur.is til að ræða fleiri möguleika!

Heimsókn fyrir hópa
Heimsókn í brugghús og mjaðargerðina inniheldur fræðslu um framleiðsluna og söguna okkar. Innifalið er smakk á þremur mismunandi drykkjum.
Heimsókn tekur um 60-90 mínútur.
Verð á mann 4.500 kr.
Lágmarksfjöldi 12 manns.
Kviss (pub quiz)
Komdu til okkar í skemmtilegt kviss! Hægt að velja úr mismunandi þemum. Innifalin er þátttaka í kvissi og 2 drykkir með fræðslu. Sigurvegarar fá verðlaun.
Heimsókn tekur um 45-90 mín.
Verð á mann 4.500 kr.
Lágmarksfjöldi 12 manns.


Barleikar
Hópefli sem hentar vel fyrir vinnustaði, gæsanir og steggjanir. Keppt verður í 3 mismunandi leikjum. Innifalin er þátttaka í leikjum ásamt 2 drykkjum með fræðslu. Sigurvegarar fá verðlaun.
Heimsókn tekur um 90-120 mínútur.
Verð á mann 5.900 kr.
Lágmarksfjöldi 12 manns.
Geturðu ekki valið á milli?
Ef þú átt í vandræðum með að velja á milli hópefla þá bjóðum við uppá möguleikann að fara í 1, 2 eða jafnvel öll 3 saman með smá afslætti.
Heimsókn + Kviss = 7.900 kr. á mann
Heimsókn + Barleikar = 9.900 kr. á mann
Kviss + Barleikar = 8.900 kr. á mann
Heimsókn + Kviss + Barleikar = 12.900 kr. á mann
Lágmarksfjöldi 12 manns.

